Mount Everest
Mount Everest er stærsti risi allra fjalla, toppurinn á jörðinni og er 8848 metrar yfir sjávarmáli eða 29029 fet. Tæknilega séð er ekki mögulegt að nokkurt annað fjall geti risið hærra upp en Mount Everest því að það er nú þegar byrjað að síga niður vegna síns eigin þunga.
Atlögur að toppnum
Fyrstu manneskjurnar sem náðu að toppnum voru Edmund Hillary og Tenzing Norgay og þetta var gert 29. maí árið 1953. Edmund var frá Bretlandi og Norgay var Serbískur. Þeir byrjuðu að klifra í mars. Eftir að þeir höfðu komist upp og sannað að það væri hægt byrjuðu margir að reyna þetta stórverk en þó voru ekki margir sem komust alla leið heldur enduðu í stórslysum.